Þjónusta
![thjonusta-2 thjonusta-2](https://bjarkarhlid.is/wp-content/uploads/elementor/thumbs/thjonusta-2-q07l15gr4msmem80vvzr614x2qypgm5gupwt4m0l5a.png)
Þverfagleg samvinna
Bjarkarhlíð býður upp á einstaklingsráðgjöf og upplýsingar fyrir fólk sem hefur verið beitt ofbeldi. Hjá Bjarkarhlíð er unnið með þolendum ofbeldis í hlýlegu og öruggu umhverfi á þeirra forsendum.
Öll þjónusta á einum stað
Þolendum ofbeldis gefst kostur á viðtölum og stuðningi frá fagaðilum, jafningjum, lögreglu og lögfræðingum þeim að kostnaðarlausu. Samstarfsaðilar koma frá Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, Kvennaathvarfi, Stígamótum, Kvennaráðgjöfinni og Mannréttindaskrifstofu Íslands.
![thjonusta3 thjonusta3](https://bjarkarhlid.is/wp-content/uploads/elementor/thumbs/thjonusta3-q07l15gr4msmem80vvzr614x2qypgm5gupwt4m0l5a.png)
![thjonusta-4 thjonusta-4](https://bjarkarhlid.is/wp-content/uploads/elementor/thumbs/thjonusta-4-q07l15gr4msmem80vvzr614x2qypgm5gupwt4m0l5a.png)
Tenging við aðra
Boðið er upp á einstaklingsviðtöl og ráðgjöf en einnig aðstoðar Bjarkarhlíð þolendur við að ná tengingu við aðra þjónustu sem nauðsynleg gæti verið s.s. velferðarþjónustu sveitafélaga og/eða heilsugæslu.
Aðgengi fyrir alla
Markmið Bjarkarhlíðar er að styðja við alla þolendur ofbeldis af ýmsum toga og sporna við afleiðingum þess á lífsgæði viðkomandi. Í Bjarkarhlíð er aðgengi fyrir hjólastóla og boðið er upp á túlkaþjónustu ef þess gerist þörf.
![thjonust-5 thjonust-5](https://bjarkarhlid.is/wp-content/uploads/elementor/thumbs/thjonust-5-q07l14iwxsrc309e1dl4ljdghd3c8x1qil9bnc1zbi.png)