Stuðningshópur fyrir þolendur ofbeldis

Skráning er hafin í haust hópa, næsti hópur er í september 2023

Tímabil: Hópurinn hittist í 10 skipti yfir 10 vikna tímabil
Tímasetning: Hópurinn hittist einu sinni í viku, á miðvikudögum, 2 tíma í senn
Heimilisfang: V/Bústaðarveg 3, 108 Reykjavík

Stuðningshópar Bjarkarhlíðar eru kynjaskiptir

Unity,and,love,partnership,as,ropes,shaped,as,a,heart
Hefur þú orðið fyrir ofbeldi í nánu sambandi? Þarftu speglun, stuðning, staðfestingu eða ráð frá einstaklingum sem hafa gengið í gegnum svipaða lífsreynslu og þú?


Bjarkarhlíð er að fara af stað með stuðningshóp fyrir þolendur sem hafa orðið fyrir ofbeldi í nánu sambandi. Hópurinn mun hittast einu sinni í viku undir handleiðslu tveggja fagmenntaðra ráðgjafa, í tvo tíma, í alls 10 skipti. Aðgangur er gjaldfrjáls.

Hver hóptími er tvískiptur og samanstendur af fræðslu og samtali. Tjáning er á eigin forsendum og engin pressa á að þátttakendur tjái sig.

Athugið að nauðsynlegt er að skrá sig því aðeins er pláss fyrir 10 einstaklinga í hvern hóp. Þátttakendur heita trúnaði og skuldbinda sig til að mæta í alla tímana. Ráðgjafi mun hafa samband við þá sem skrá sig til að staðfesta þátttöku.