Persónuverndarstefna Bjarkarhlíðar
Samþykkt á stjórnarfundi Bjarkarhlíðar 20. janúar 2025
Persónuverndarstefna þessi er sett í samræmi við ákvæði laga um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga nr. 90 frá 2018. Meðferð persónuupplýsinga getur varðað friðhelgi einkalífs sem varin er af 8. gr. Mannréttindasáttmála Evrópu.
Um persónuupplýsingar
Persónuupplýsingar eru hvers kyns upplýsingar um einstakling sem gera kleift að persónugreina hann og tengjast honum beint eða óbeint. Ekki er átt við nafnlaus gögn, en það eru upplýsingar sem persónugreinandi gögn hafa verið fjarlægð úr. Bjarkarhlíð skuldbindur sig til að varðveita upplýsingar sem kunna að vera persónugreinalegar á öruggan og tryggan hátt.
Bjarkarhlíð geymir upplýsingar um:
Netföng stjórnar Bjarkarhlíðar
Netföng stjórnar eru vistuð í tölvu teymisstjóra og hefur hún ein aðgang að henni. Bjarkarhlíð sendir netfanga- og nafnaskrána aldrei með tölvupósti né fjölfaldar hana að nokkru leyti. Er listinn einvörðungu notaður í þeim tilgangi að boða til stjórnarfunda.
Upplýsingar um þjónustuþega
Einstaklingar sem leita til Bjarkarhlíðar eru jafnan beðnir að gefa upp fornafn og símanúmer við tímabókun. Nafn er notað til að aðgreina fólk hvert frá öðru og eru þessar upplýsingar færðar inn í tímabókunarkerfið Tímatal en ráðgjafar Bjarkarhlíðar hafa aðgang að kerfinu.
Símanúmerið er notað til að hringja/senda SMS og afboða ef ráðgjafi forfallast og til að senda SMS áminningu um viðtalið sólarhring áður. Ávallt er hægt að óska eftir að SMS sé ekki sent.
Þjónustuþegar undirrita þagnarheiti þar sem hakað er við hvort það megi senda þeim rafræna þjónustukönnun.
Hvernig öryggi gagnanna er tryggt
Upplýsingar um nöfn, símanúmer og tímabókanir eru geymdar í tímabókunarkerfi þriðja aðila, noona -Tímatali sem hefur skuldbundið sig til að starfa í samræmi við lög um persónuvernd. Persónuverndarstefnu þeirra má finna hér.
Útgáfa staðfestingar á komu í Bjarkarhlíð
Reglulega óska þjónustuþegar eftir staðfestingu um komu sína í Bjarkarhlíð og fjölda viðtala. Staðfesting er aðeins veitt ef þjónustuþegi sjálfur óskar eftir eða gefur leyfi fyrir því skriflega.
Vefur
Vefsíða Bjarkarhlíðar er hýst af vefumsjónarkerfinu Squarespace. Vefsíðan notar vafrakökur (e. cookies) og með því að samþykkja þær er komið leyfi fyrir þeim. Vefsvæðið nýtir sér þessar vafrakökur til að greina umferð um vefinn. Þessar upplýsingar eru ekki persónugreinanlegar.
Vefurinn er hýstur hjá 1984 ehf. Í flestum vöfrum er hægt að breyta öryggisstillingum svo þeir taki ekki á móti kökum. Einnig er auðvelt að eyða vafrakökum.
Ef frekari spurningar vakna
Hægt er að senda fyrirspurn í tölvupósti á netfangið bjarkarhlid@bjarkarhlid.is. Til að auðvelda úrvinnslu biðjum við þig um að merkja tölvupóstinn í efnislínu „Mínar upplýsingar hjá Bjarkarhlíð“.
Nánar um persónugreinanlegar upplýsingar
Ef rannsóknarhagsmunir eða öryggi einstaklinga eru undir er persónugreinanlegum upplýsingum deilt til viðeigandi yfirvalda og brotaþola tilkynnt um miðlun upplýsinganna.
Úrvinnsla og tölfræði
Í ársskýrslu Bjarkarhlíðar er að finna nöfn stjórnarfólks og fyrir hvaða samstarfsaðila þau eru fulltrúar. Að öðru leyti er einungis að finna ópersónugreinanlegar upplýsingar um aðra en teymisstjóra og starfsfólk Bjarkarhlíðar.
Þeir einstaklingar sem nýta sér þjónustu Bjarkarhlíðar eru beðnir að svara ýmsum spurningum sem skráðar eru í komuskýrslu í fyrsta viðtali. Þessar upplýsingar eru ópersónugreinanlegar og unnið er úr þeim á ári hverju í ársskýrslu Bjarkarhlíðar.
Fagleg vinnsla starfsfólks
Starfsfólk Bjarkarhlíðar leggur sig fram við að allar persónugreinarlegar upplýsingar séu varðveittar með öruggum hætti og hefur aðeins starfsfólk Bjarkarhlíðar aðgang að þeim.
Breytingar
Bjarkarhlíð áskilur sér rétt til að breyta persónuverndarstefnu sinni, en tryggt skal að nýjasta stefnan sé ávallt aðgengileg á vef Bjarkarhlíðar www.bjarkarhlid.is.
Hafið samband
Ef þú hefur einhverjar spurningar um þessa persónuverndarstefnu er hægt að senda fyrirspurn á bjarkarhlid@bjarkarhlid.is.
Ef það kemur upp óánægja með vinnslu Bjarkarhlíðar á persónuupplýsingum er hægt að senda erindi til Persónuverndar (www.personuvernd.is).